Stefna og framtíðarsýn

Viðskiptavinir okkar hafa ólík markmið og takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir. Við viljum auðvelda þeim að grípa þau tækifæri sem gefast, að láta drauma sína rætast og ná markmiðum. Við vinnum með viðskiptavinum að því að búa í haginn fyrir framtíðina. Saman látum við góða hluti gerast.

Large-kona-madur-viti-strond-hvitt-bak.jpg

Stefna Arion banka 

Arion banki er fjárhagslega sterkur banki sem veitir alhliða fjármálaþjónustu til fyrirtækja og einstaklinga með það að markmiði að skapa verðmæti til framtíðar, viðskiptavinum, hluthöfum, samstarfsaðilum og samfélaginu öllu til góða.

Arion banki leggur áherslu á:

  • Að veita viðskiptavinum fjölbreytta fjármálaþjónustu.

  • Jákvæða upplifun viðskiptavina og viðskiptasamband til langs tíma með því að veita framúrskarandi þjónustu í gegnum fjölbreyttar þjónustuleiðir.

  • Stöðuga þróun þjónustu í takt við síbreytilegt umhverfi og að nýta til þess hæfan mannauð, eigin tæknilausnir og valda samstarfsaðila.

  • Að vera í fararbroddi hvað varðar nýsköpun, skilvirkni og öryggi í fjármálaþjónustu.

  • Eftirsóknarvert og hvetjandi starfsumhverfi.

  • Að starfa á ábyrgan hátt í sátt við samfélag og umhverfi.

Arion banki er árangursdrifinn og leitast við að miðla upplýsingum um markmið og árangur með skilmerkilegum hætti til hluthafa og annarra hagsmunaaðila.

Helstu eiginleikar

Hornsteinarnir

 

Gerum gagn

Við leggjum grunn að góðum árangri viðskiptavina okkar og gerum þeim gagn með góðri þjónustu, fjölbreyttum lausnum og öflugri vöruþróun. Við gerum samfélaginu gagn með því að starfrækja góðan banka og leggjum okkar af mörkum til að hér á landi starfi traust og öflugt fjármálakerfi.

 

Komum hreint fram

Við komum hreint fram, af virðingu og gætum trúnaðar í hvívetna. Við vinnum af heilindum, erum sanngjörn og segjum hlutina eins og þeir eru. Við berum virðingu fyrir samfélaginu og ástundum góða viðskiptahætti. Þannig ávinnum við okkur traust viðskiptavina og samfélagsins.

 

Látum verkin tala

Það skiptir mestu hverju við komum í verk. Við forðumst ekki erfið verkefni heldur tökumst á við þau og vinnum af fagmennsku. Komum hlutum í framkvæmd og öxlum ábyrgð á okkar verkefnum og ákvörðunum. Sýnum frumkvæði í samskiptum og skjót viðbrögð og upplýsum um framgang mála. Við ætlum að vera áfram í fararbroddi hvað varðar árangursríka fjármálaþjónustu og stuðla að uppbyggingu og árangri fyrir viðskiptavini og samfélagið allt.

Við tengjum betur

Við erum tengslabanki og mætum fjölbreyttum þörfum viðskiptavina með öflugri sérþekkingu, framúrskarandi þjónustu og fjölbreyttu vöruframboði á sviði fjármála. Með því að setja okkur í spor viðskiptavina okkar, skilja aðstæður þeirra og bjóða lausnir sem henta hverjum og einum uppfyllum við þarfir þeirra. Við kappkostum að viðhalda góðu viðskiptasambandi til lengri tíma, skila árangri og fara fram úr væntingum.

Þægilegri bankaþjónusta

Straumlínustjórnun er hluti af menningu okkar. Við leggjum áherslu á skilvirka starfsemi þar sem hlustað er á rödd viðskiptavinarins og hann settur í aðalhlutverk. Við vinnum markvisst gegn sóun og styttum boðleiðir til að auka sveigjanleika og snerpu. Á hverjum degi viljum við gera betur í dag en í gær. Við tökumst á við vandamál með því að finna rót vandans og leita lausna.

Þannig bætum við þjónustu okkar við viðskiptavini kerfisbundið. Stuðlum að betri upplifun og aukinni ánægju. Í hröðu samfélagi nútímans vill viðskiptavinurinn ráða ferðinni. Hann vill ákveða sjálfur hvar, hvenær og hvernig hann nýtir sér þjónustuna og við viljum tryggja að við mætum honum þar sem hann þarf á okkur að halda. Stafræn tækni býður upp á skilvirkni, sveigjanleika og þar með aukna þjónustu við viðskiptavini.

Í hröðu samfélagi nútímans vill viðskiptavinurinn ráða ferðinni. Hann vill ákveða sjálfur hvar, hvenær og hvernig hann nýtir sér þjónustuna og við viljum tryggja að við mætum honum þar sem hann þarf á okkur að halda.

Við ætlum okkur að vera fremsti stafræni bankinn á Íslandi.

Við temjum okkur hröð en öguð vinnubrögð, nána samvinnu á milli sviða bankans og skapandi hugsunarhátt. Með vel skilgreindum og afmörkuðum verkefnahröðlum þróum við kerfisbundið ferli og vörur sem bæta upplifun viðskiptavina okkar. Við köllum þessa aðferðafræði „stafræna framtíð“. Við endurvinnum ferlana okkar þannig markvisst. Erum tilbúin að setja hið viðtekna til hliðar og hugsa upp á nýtt hvernig stafræn tækni getur fjarlægt hindranir og einfaldað viðskiptavinum okkar lífið. 

Samhliða þróum við útibúakerfið okkar. Með opnum og aðgengilegum rýmum í alfaraleið, sveigjanlegum afgreiðslutíma, stafrænum lausnum og fjarfundaþjónustu aukum við skilvirkni viðskiptavina og auðveldum þeim að nýta sér þjónustuna okkar.

Með þessum hætti mætum við breyttum væntingum markaðarins og breyttri samkeppni.

Þannig bjóðum við þægilegri bankaþjónustu.