Stjórn

Formaður

Eva Cederbalk

Eva er fædd árið 1952. Eva var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á hluthafafundi 23. júní 2017. Hún er hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Eva er formaður stjórnar og formaður lánanefndar stjórnar. Eva er með meistaragráðu í hagfræði frá Stockholm School of Economics.

Eva er í dag forstjóri Cederbalk Consulting AB. Eva starfaði áður m.a. hjá Skandinaviska Enskilda Banken AB og If Skadeförsäkring AB. Hún var forstjóri Netgiro Systems AB og SBAB Bank AB og framkvæmdastjóri hjá Dial Försäkring AB. Eva hefur setið í fjölmörgum stjórnum og var meðal annars stjórnarformaður Klarna AB og sat í stjórn Gimi AB og Íslandsbanka. Í dag situr Eva í stjórn National Bank of Greece Group, Svolder og Ikano Group S.A.

Varaformaður

Brynjólfur Bjarnason

Brynjólfur er fæddur árið 1946. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi 20. nóvember 2014. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Brynjólfur er varaformaður stjórnar, formaður endurskoðunarnefndar stjórnar og situr í lánanefnd stjórnar. Brynjólfur útskrifaðist með MBA-gráðu frá University of Minnesota árið 1973. Hann útskrifaðist með cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1971.

Brynjólfur hefur starfað m.a. sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, forstjóri Skipta, forstjóri Símans og sem forstjóri Granda hf. Hann starfaði jafnframt sem framkvæmdastjóri AB bókaútgáfu og sem forstöðumaður hagdeildar VSÍ. Brynjólfur hefur mikla reynslu af stjórnarsetu og hefur setið í fjölmörgum stjórnum í gegnum tíðina og gegnt stjórnarformennsku í nokkrum þeirra. Í dag situr Brynjólfur sem varamaður í stjórn Fergusson ehf. og stjórnarmaður í Marinvest ehf. og ISAL hf. 

Stjórnarmaður

Benedikt Gíslason

Benedikt er fæddur árið 1974. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi 5. september 2018. Benedikt er ekki hluthafi í bankanum og er háður stjórnarmaður. Benedikt situr í áhættunefnd stjórnar og starfskjaranefnd stjórnar. Benedikt útskrifaðist með C.Sc.-gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1998.

Benedikt starfar sem ráðgjafi hjá Kaupþingi ehf. Hann starfaði áður sem ráðgjafi hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka og sinnti auk þess margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarás fjárfestingarbanka, m.a. sem framkvæmdastjóri verðbréfasviðs og síðar forstjóri. Þá starfaði Benedikt áður sem framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og hjá eiginviðskiptum og markaðsviðskiptum hjá Íslenska fjárfestingarbankanum (e. The Icelandic Investment Bank – FBA), síðar Íslandsbanki-FBA. Benedikt sat áður í stjórn Kaupþings og VÍS. Í dag situr Benedikt í stjórn Genís hf., EC Hugbúnaðar ehf. og EC Software Sweden auk þess að vera varamaður í stjórn Brekkuás ehf.

Stjórnarmaður

Herdís Dröfn Fjeldsted

Herdís er fædd árið 1971. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á aðalfundi 15. mars 2018. Herdís er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Herdís situr í endurskoðunarnefnd og er formaður starfskjaranefndar stjórnar. Herdís útskrifaðist með BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á alþjóðamarkaðssetningu úr Tækniháskóla Íslands árið 2004 og með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011. Herdís er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum.

Herdís starfaði sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) frá 2014 en fyrir þann tíma starfaði hún sem fjárfestingarstjóri hjá FSÍ. Áður en hún hóf störf hjá FSÍ starfaði hún sem sérfræðingur í fjárfestingaráðgjöf hjá Thule Investments. Herdís hefur einnig setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja, m.a. sem stjórnarformaður Icelandic Group og VÍS hf., varaformaður stjórnar Promens og sem stjórnarmaður hjá Icelandair Group, Invent Farma, Medicopack A/S og Copeinca AS. Í dag situr Herdís í stjórn Íslensk-kanadíska viðskiptaráðsins.

Stjórnarmaður

Måns Höglund

Måns er fæddur árið 1951. Hann var fyrst kjörinn sem aðalmaður í stjórn Arion banka á aðalfundi hans 24. mars 2011. Hann er hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Måns er formaður áhættunefndar stjórnar og situr í lánanefnd stjórnar. Måns útskrifaðist með BS-gráðu í hagfræði frá Stockholm School of Economics árið 1975.

Måns starfaði áður hjá Swedish Export Credit Corporation (SEK) sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaþjónustu með sæti í framkvæmdastjórn bankans auk þess að hafa unnið bæði í Unibank sem forstöðumaður yfir Svíþjóð og Nordea sem forstöðumaður einkabankaþjónustu í Svíþjóð. Þá starfaði Måns hjá Swedbank, m.a. sem forstöðumaður fyrirtækjasviðs og hjá Götabanken í London og Stokkhólmi auk þess að hafa gegnt ýmsum störfum hjá Hambros Bank í London. Måns hefur jafnframt starfað við kennslu og rannsóknir hjá Stockholm School of Economics.

Stjórnarmaður

Steinunn Kristín Þórðardóttir

Steinunn er fædd árið 1972. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á hluthafafundi 30. nóvember 2017. Steinunn er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Steinunn er með meistaragráðu í alþjóðlegri stjórnun (e. Master´s degree in International Management – MIM) frá Thunderbird, Arizona og BA-gráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnmálafræði frá University of South Carolina.

Steinunn starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance í Noregi auk þess að gegna stöðu forstöðumanns alþjóðadeildar fyrirtækisins á sviði matvæla og sjávarfangs. Þá stofnaði Steinunn ráðgjafarfyrirtækið Akton AS í Noregi 2010 og var framkvæmdastjóri þess til 2015. Hún starfaði áður hjá Íslandsbanka (síðar Glitni), fyrst sem forstöðumaður alþjóðalánveitinga og síðar sem framkvæmdastjóri bankans í Bretlandi. Steinunn sat áður í stjórn Silver Green AS og Silver Green TC AS í Noregi, Versobank AS í Eistlandi, stjórn Bankasýslu ríkisins og sem varamaður í stjórn Kredittbanken, síðar Glitnir Norway.

Í dag er Steinunn stjórnarformaður Acton Capital AS og Akton AS og situr í stjórn Cloud Insurance AS. Hún situr jafnframt í Bresk-íslenska viðskiptaráðinu, er varaformaður í Norsk-íslenska viðskiptaráðinu og meðlimur í Exedra. Þá situr Steinunn í tilnefningarnefnd Símans.

Varamenn í stjórn

Ólafur Örn Svansson hæstaréttarlögmaður, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir lögfræðingur og Þórarinn Þorgeirsson lögmaður. Ólafur og Sigurbjörg eru óháðir varamenn og Þórarinn er háður varamaður.