Yfirstjórn

Bankastjóri

Höskuldur H. Ólafsson

Höskuldur er fæddur árið 1959. Hann tók við stöðu bankastjóra Arion banka í júní 2010. Höskuldur er hluthafi í bankanum en við hann hafa ekki verið gerðir kaupréttarsamningar.

Höskuldur starfaði áður sem forstjóri Valitor hf. frá árinu 2006. Hann starfaði hjá Eimskip í 17 ár þar sem hann sinnti margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal stöðu aðstoðarforstjóra fyrirtækisins. Höskuldur hefur jafnframt setið í stjórnum fjölmargra félaga og fyrirtækja hér á landi og erlendis. 

Höskuldur útskrifaðist með cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1987.

Skipurit 2018 

 

 

 

Framkvæmdastjórn

 

Þjónustusvið

Framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs

Iða Brá Benediktsdóttir

Iða Brá Benediktsdóttir er fædd 1976. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs í júlí 2017.

Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 er hún kom til starfa hjá greiningardeild bankans. Á þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bankans, síðast sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs frá 2016 til 2017. Áður hafði Iða Brá m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða er varaformaður stjórnar Varðar og hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja: Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda hf. 

Iða Brá útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1999. Árið 2004 útskrifaðist hún með M.Sc.-gráðu í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Rotterdam í Hollandi og hún er með próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs

Lýður Þór Þorgeirsson

Lýður er fæddur árið 1976. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs Arion banka í október 2017.

Frá árinu 2010 til 2017 starfaði Lýður hjá GAMMA Capital Management hf., fyrst sem sjóðstjóri ýmissa fagfjárfestasjóða og sem framkvæmdastjóri sérhæfðra fjárfestinga frá árinu 2013. Lýður starfaði hjá Kaupþingi frá 2009 til 2010 þar sem hann var lánastjóri erlendra fyrirtækjalána en áður starfaði hann við fyrirtækjaráðgjöf hjá Arion banka og forvera hans frá árinu 2007. Á árunum 2000-2005 starfaði Lýður hjá Íslandsbanka við skuldsetta fjármögnun fyrirtækja og áhættustýringu.

Lýður er með MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management og B.Sc.-gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri eignastýringarsviðs

Margrét Sveinsdóttir

Margrét er fædd árið 1960. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra eignastýringarsviðs Arion banka í febrúar 2009.

Frá 2007 til 2009 starfaði hún sem forstöðumaður samskipta við erlendar fjármálastofnanir innan fjárstýringar Glitnis hf./Nýja Glitnis. Á árunum 1990 til 2007 starfaði Margrét sem forstöðumaður Verðbréfavaktar og eignastýringar einstaklinga hjá Verðbréfamarkaði Íslandsbanka, síðar Eignastýringar Glitnis hf. Frá árinu 1985 til 1988 starfaði hún í lánadeild Iðnaðarbanka Íslands þar sem hún var um tíma forstöðumaður. Margrét hefur setið í fjölmörgum stjórnum og má þar nefna stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir hönd SFF, stjórn OKKAR líftrygginga hf. og stjórnir nokkurra sjóðafyrirtækja í Lúxemborg.

Margrét útskrifaðist með MBA-gráðu frá Babson College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1990 og cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs

Rúnar Magni Jónsson

Rúnar Magni Jónsson er fæddur árið 1976. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Arion banka í október 2018.

Rúnar Magni hefur starfað í fimmtán ár hjá bankanum og fyrirrennurum hans, lengst af á fyrirtækjasviði. Hann starfaði sem verðbréfamiðlari hjá Kaupþingi á árinum 2000-2002 og hóf störf sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði árið 2005. Rúnar tók svo við stöðu forstöðumanns á fyrirtækjasviði árið 2014 sem hann gegndi þar til hann tók við starfi framkvæmdastjóra.

Rúnar Magni er með meistarapróf í alþjóðamarkaðmálum og stjórnun (IMM) frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann er jafnframt með próf í verðbréfaviðskiptum.

Stoðsvið

Framkvæmdastjóri lögfræðisviðs

Jónína S. Lárusdóttir

Jónína er fædd árið 1970. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra lögfræðisviðs Arion banka í nóvember 2010.

Jónína var ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu frá 2007 til 2010. Á árunum 2004 til 2007 var hún skrifstofustjóri almennrar skrifstofu í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Frá 2000 til 2004 starfaði Jónína í viðskiptaráðuneytinu sem deildarsérfræðingur á skrifstofu fjármagnsmarkaðar. Á árunum 1996 til 2000 starfaði hún sem lögmaður hjá A&P lögmönnum. Jónína hefur setið í og stýrt fjölmörgum nefndum, m.a. á vegum forsætisráðuneytisins og starfað sem stundakennari, m.a. við lagadeild Háskóla Íslands. Hún var formaður Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta á árunum 2003 og 2004. Jónína situr í stjórn Valitor hf.

Jónína lauk meistaraprófi frá London School of Economics and Political Science árið 2000. Hún brautskráðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1996 og fékk málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi ári síðar.

Framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs

Rakel Óttarsdóttir

Rakel er fædd árið 1973. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs í júlí 2016.

Í desember 2015 tók Rakel tímabundið við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Arion banka en frá árinu 2011 starfaði hún sem framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs bankans. Áður starfaði Rakel sem forstöðumaður verkefnastofu á þróunar- og markaðssviði Arion banka, frá 2010 til 2011. Á árunum 2005 til 2010 gegndi hún starfi viðskiptastjóra á upplýsingatæknisviði Kaupþings banka. Áður starfaði hún sem rekstrar- og þróunarstjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software.

Rakel útskrifaðist með MBA-gráðu frá Duke University í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum árið 2002 og sem tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1997.

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Stefán Pétursson

Stefán er fæddur árið 1963. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs Arion banka í ágúst 2010.

Stefán hóf störf hjá Landsvirkjun 1991, fyrst sem yfirmaður lánamála en sem deildarstjóri fjármáladeildar frá 1995. Frá árinu 2002 var Stefán framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar auk þess sem hann sat í samninganefnd fyrirtækisins við orkufrekan iðnað. Stefán var í leyfi frá Landsvirkjun á árinu 2008 er hann stýrði fjárfestingarfélaginu Hydro-Kraft Invest hf. Á árunum 1986 til 1989 starfaði Stefán sem skrifstofustjóri hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Stefán hefur gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnunarstarfa á undanförnum árum. Hann situr nú í stjórn Valitor hf. og Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir hönd SFF.

Stefán útskrifaðist með MBA-gráðu frá Babson College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1991 og cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986.

Forstöðumaður fjárfestatengsla

Sture Stölen

Sture Stölen er fæddur árið 1967. Hann tók við sem forstöðumaður fjárfestatengsla í febrúar 2017.

Sture starfaði sem forsöðumaður fjárfestatengsla hjá SAS AB í Svíþjóð frá árinu 2001 til ársins 2013. Á árunum 1993 til 2001 gegndi Sture ýmsum störfum í fjárstýringu og fjármálum hjá SAS AB. Frá árinu 2013 til dagsins í dag hefur Sture verið ráðgjafi og meðeigandi hjá Wildeco Ekonomisk Information AB í Svíþjóð. Hann sat í stjórn Forex Bank AB í Svíþjóð á árunum 2013-2014. Sture hefur gegnt starfi forstöðumanns fjárfestatengsla hjá TF Bank AB frá árinu 2016.

Sture lauk meistaraprófi í fjármálum frá Norwegian School of Business í Osló á árinu 1993.

Innra eftirlit

Persónuverndarfulltrúi

Erla Þuríður Pétursdóttir

Erla er fædd árið 1974. Hún er fyrsti persónuverndarfulltrúi Arion banka og byrjaði í júní 2018.

Erla starfaði sem yfirlögfræðingur Valitor frá 2007 til 2017. Áður starfaði hún á skatta- og lögfræðisviði KPMG í tvö ár og í fjármálaráðuneytinu á árunum 2001-2004.

Erla útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1999, fékk réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2004 og lauk mastersgráðu í lögum frá University of Miami árið 2005. 

Framkvæmdastjóri áhættustýringarsviðs

Dr. Gísli S. Óttarsson

Gísli er fæddur árið 1963. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra áhættustýringarsviðs Arion banka í apríl 2009.

Á árunum 2006 til 2008 starfaði Gísli í áhættustýringu Kaupþings banka þar sem hann gegndi stöðu forstöðumanns innan rannsóknar- og hönnunardeildar. Frá 2001 til 2006 stýrði Gísli þróun verkfræðihugbúnaðar fyrir MSC.Software í Bandaríkjunum. Frá 1994 til 2001 stýrði Gísli þróun verkfræðiforritsins ADAMS fyrir Mechanical Dynamics Inc. í Bandaríkjunum.

Gísli hlaut doktorsgráðu í vélaverkfræði árið 1994 frá University of Michigan og meistaragráðu í hagnýtri aflfræði árið 1989 frá sama skóla. Árið 1986 lauk Gísli prófi í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum.

Regluvörður

Hákon Már Pétursson

Hákon er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi regluvarðar Arion banka í apríl árið 2011.

Á árunum 2009 til 2011 starfaði Hákon hjá KVASIR lögmenn í ýmsum málum tengdum bankastarfsemi og fjárhagslegri endurskipulagningu. Á árunum 2006 til 2009 starfaði Hákon sem sérfræðingur á verðbréfasviði Fjármálaeftirlitsins (FME). Á þessum tíma var hann m.a. fulltrúi FME í hópi sérfræðinga vegna bæði MiFID og yfirtökutilskipunarinnar, hjá nefnd evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR), auk þess að vera gestafyrirlesari hjá bæði Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.

Hákon útskrifaðist sem lögfræðingur frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2007. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum og vottun í aðgerðum gegn peningaþvætti.

Umboðsmaður viðskiptavina

Helgi G. Björnsson

Helgi er fæddur árið 1961. Hann tók við sem umboðsmaður viðskiptavina Arion banka í apríl 2012.

Helgi starfaði sem sérfræðingur hjá umboðsmanni viðskiptavina Arion banka frá 2010 til 2012. Á árunum 1999 til 2010 starfaði Helgi sem útibússtjóri hjá Búnaðarbanka Íslands, síðar Kaupþingi banka, í Grafarvogsútibúi. Hann var aðstoðarútibússtjóri Búnaðarbankans á Akureyri frá 1993 til 1999. Á árunum 1989 til 1993 vann Helgi fyrir Skattrannsóknarstjóra, þar sem hann hafði umsjón og eftirlit, ásamt því að veita ráðgjöf, með reikningshaldi fyrirtækja fyrir Norðurland eystra. Frá 1987 til 1989 starfaði Helgi sem kennari við Samvinnuháskólann og Háskólann á Bifröst þar sem hann kenndi m.a. reikningshald og framleiðslu- og starfsmannastjórnun.

Helgi útskrifaðist sem iðnrekstrarfræðingur frá Tækniskóla Íslands árið 1987.

Innri endurskoðandi

Lilja Steinþórsdóttir

Lilja er fædd árið 1949. Hún var skipuð innri endurskoðandi Arion banka í október 2008 og lét af störfum í árslok 2018.

Lilja starfaði sem innri endurskoðandi hjá Kaupþingi banka á árunum 2006 til 2008. Áður starfaði hún sem innri endurskoðandi hjá Seðlabankanum í átta ár. Árið 1986 stofnaði hún endurskoðunarfyrirtæki á Akureyri sem hún rak í 13 ár. Hún sat í endurskoðunarnefnd Reiknistofu bankanna frá 1998 til 2010, til að byrja með fyrir hönd Seðlabanka Íslands en síðar fyrir hönd Arion banka.

Lilja útskrifaðist med MBA-gráðu frá University of Edinburgh árið 1998. Hún varð löggiltur endurskoðandi árið 1984 og útskrifaðist með cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1980.