Ófjárhagslegar upplýsingar
Upplýsingar sem birtar eru í samantekt á ófjárhagslegum upplýsingum gilda fyrir árið 2018 og tengjast meginstarfsemi Arion banka, dótturfélög standa utan uppgjörsins. Gögn frá árunum 2015, 2016 og 2017 eru sett fram til samanburðar.
Skýringar á tilvísunum
- E, S og G ásamt tölustöfum eru vísanir í atriði tengd umhverfi (Environment), samfélagi (Society) og stjórnarháttum (Governance) sem kveðið er á um í leiðbeiningum Nasdaq á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Sjá nánar á vef Nasdaq.
- GRI stendur fyrir Global Reporting Intiative. Aðferð GRI hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að greina, safna og birta upplýsingar um efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg áhrif af starfsemi sinni. Sjá nánar á vef GRI.
- UNGC stendur fyrir United Nations Global Compact. Með þátttöku í Global Compact skuldbinda fyrirtæki eða stofnanir sig til að vinna að tíu grundvallarviðmiðum Sameinuðu þjóðanna er varða samfélagsábyrgð og styðja helstu markmið Sameinuðu þjóðanna. Sjá nánar á vef United Nations Global Compact.
Umhverfi
Samfélag
Stjórnarhættir
Áreiðanleiki gagna
Samantekt á ófjárhagslegum upplýsingum fyrir árið 2018 var unnin í samstarfi við íslenska nýsköpunarfyrirtækið Klappir Grænar Lausnir hf. Klappir sérhæfa sig í ráðgjöf og tæknilegum vef- og viðskiptalausnum fyrir þætti sem falla undir samfélagsábyrgð og sjálfbærni í rekstri skipulagsheilda. Slík aðstoð frá þriðja aðila tryggir betur áreiðanleika og gæði þeirra gagna sem sett eru fram.
Aðferðafræði við umhverfisuppgjör
Árið 2016 innleiddi Arion banki hugbúnað sem safnar mæligildum frá hverri rekstrareiningu og streymir þeim í miðlægan gagnagrunn fyrir umhverfismál. Í gagnagrunninum eru gögnin samtvinnuð, losun gróðurhúsalofttegunda reiknuð og greiningar á kolefnisspori fyrirtækisins framkvæmdar.
Upplýsingarnar eru birtar í notendaviðmóti hugbúnaðarins sem hannað er til að gefa góða yfirsýn yfir umhverfismálin og ýmsa rekstrarþætti og þannig aðstoða stjórnendur við að ná fram árangri í umhverfismálum og aukinni rekstrarhagræðingu. Innleiðingin hefur gengið samkvæmt áætlun.
Við útreikninga á umhverfisuppgjöri Arion banka er stuðst við „The Greenhouse Gas Protocol“ sem er stöðluð aðferðafræði sem innleidd hefur verið af fjölda fyrirtækja um allan heim með góðum árangri. Arion banki hefur lagt áherslu á að loftslagsverkefnið sé unnið innan ramma þeirra innlendu og alþjóðlegu laga og reglugerða sem snúa að umhverfismálum.
Á myndinni hér fyrir neðan er aðferðafræðinni lýst en samkvæmt henni er gert ráð fyrir að losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) eigi sér stað í þremur þrepum. Í megindráttum myndast losun vegna flutnings á aðföngum til fyrirtækis, vegna eigin starfsemi fyrirtækis og vegna flutnings á vörum og þjónustu frá fyrirtæki. Þrepin innihalda þrjár tegundir umfanga sem skiptast í bein og óbein áhrif.
Umfang 1 inniheldur losun sem til fellur vegna eigin starfsemi fyrirtækis. Í tilfelli Arion banka er um að ræða rekstur á eigin húsnæði og farartækjum bankans. Losun af þessu tagi telst til beinna áhrifa af starfsemi fyrirtækja.
Umfang 2 inniheldur losun vegna rafmagnsnotkunar og húshitunar. Losun af þessu tagi telst til óbeinna áhrifa af starfsemi fyrirtækis.
Umfang 3 telst til óbeinna áhrifa af starfsemi fyrirtækis. Í tilfelli Arion banka er hér um að ræða ýmsa sorphirðu við bankann og viðskiptaferðir innan og utanlands. Unnið verður í því að ná sífellt betur utan um aðra þætti sem falla undir umfang 3, svo sem akstur starfsfólks til og frá vinnu.