Fjármögnun og lausafjárstaða
Á undanförnum misserum hefur Arion banki stigið afgerandi skref til að auka fjölbreytni fjármögnunarkosta, meðal annars með útgáfu víkjandi skuldabréfa og útgáfu skuldabréfa í evrum og öðrum gjaldmiðlum. Á innlendum markaði hefur bankinn haldið áfram að gefa út sértryggð skuldabréf og víxla.
Samsetning fjármögnunar
EMTN útgáfur
Í mars gaf Arion banki út skuldabréf til fimm ára að upphæð 300 milljónir evra. Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum en í heild bárust tilboð frá ríflega 40 fjárfestum fyrir um 375 milljónir evra. Skuldabréfin bera fasta 1,0% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 0,65% álagi á millibankavexti.
Í desember 2018 fór bankinn í endurkaup á 300 milljóna evra skuldabréfi með gjalddaga í apríl 2019. Bankanum bárust tilboð að fjárhæð EUR 155 milljónir og var öllum tilboðum tekið.
Víkjandi útgáfur
Arion banki gaf á árinu út í fyrsta sinn skuldabréf eiginfjárþáttar 2 að fjárhæð 500 milljónir sænskra króna. Skuldabréfin voru gefin út til 10 ára með innköllunarheimild af hálfu útgefanda eftir 5 ár (10NC5). Skuldabréfin, sem eru fyrsta víkjandi útgáfa Arion banka, eru með fljótandi vexti 310 punkta ofan á millibankavexti í sænskum krónum. Skuldabréfin teljast til eiginfjárþáttar 2 samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Útgáfa skuldabréfanna styrkir eiginfjárgrunn bankans og er áfangi í þeirri vegferð hans að ná fram hagkvæmri skipan eiginfjár.
Endurgreiðsluferill fjármögnunar
Lánshæfismat
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P) staðfesti lánshæfismat Arion banka BBB+ með stöðugum horfum. Skammtímalánshæfismat bankans er A-2.
Í tilkynningu frá Standard & Poor´s kemur fram að íslenska fjármálakerfið sé stöðugt og að hagkerfið haldi áfram að vaxa en það dragi úr merkjum um ofhitnun í hagkerfinu. Að mati fyrirtækisins raskar þátttaka lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði samkeppnisumhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja.
Langtíma lánshæfismat
Heimild: Seðlabanki Íslands, S&P
Standard & Poor's (S&P)
Flokkur | Arion banki | Íslenska ríkið* |
---|---|---|
Langtíma | BBB+ | A |
Skammtíma | A-2 | A-1 |
Horfur | Stöðugar | Stöðugar |
Síðasta mat | 17. júlí 2018 | 17. mars 2017 |
*Skuldbindingar í erlendri mynt. Frekari upplýsingar má fá á www.cb.is.
Útgáfa sértryggðra skuldabréfa og víxla
Arion banki hélt áfram útgáfu sértryggðra skuldabréfa sem tryggð eru samkvæmt lögum nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf. Á árinu voru gefin út sértryggð skuldabréf fyrir 31,6 milljarða króna. Í janúar var gefinn út nýr verðtryggður flokkur, ARION CBI 48.
Arion banki endurnýjaði samninga við Kviku, Íslandsbanka og Landsbankann um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum á Nasdaq Íslandi útgefnum af Arion banka. Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með markflokka sértryggðra skuldbréfa útgefnum af bankanum.
Bankinn hefur haldið áfram útgáfu víxla á innlendum markaði, en útgáfa víxla hefur aukið enn frekar fjölbreytni í fjármögnun bankans. Alls voru gefnir út víxlar að fjárhæð 31,4 milljarðar króna á árinu 2018. Útistandandi víxlar við árslok voru samtals 15,6 milljarðar króna.
Lausafjárstaða og lausafjáráhætta
Bankinn er fjármagnaður að hluta með innlánum frá einstaklingum, fyrirtækjum og lífeyrissjóðum. Eitt af meginmarkmiðum Arion banka er að viðhalda sterku lausafjárþekjuhlutfalli (liquidity coverage ratio, LCR) sem er reiknað samkvæmt reglum Seðlabankans. LCR tekur mið af evrópskum lausafjárreglum sem byggja á Basel III staðlinum og tekur á áhættuþáttum sem snerta hvikleika innlána og tímamisvægi eigna og skulda. Í árslok var lausafjárþekjuhlutfall bankans 164% og fyrir erlenda gjaldmiðla var hlutfallið 439%, sem er vel yfir þeim mörkum sem reglur Seðlabankans kveða á um.
Fjármögnunarhlutfall bankans (Net Stable Funding Ratio, NSFR) var 120% í árslok 2018 og 155% í erlendum gjaldmiðlum. Hlutfallið vegur tiltæka stöðuga fjármögnun bankans gagnvart nauðsynlegri stöðugri fjármögnun samkvæmt aðferð sem tekur m.a. tillit til seljanleika eigna og gjalddaga skulda. Hlutföllin sýna að fjármögnun bankans er stöðug.